Maður er fluttur
Halló þið þarna, já ég er bara fluttur til Bretlands takk fyrir.
Flaug út þann 28. maí klukkan 16:20 (átti að fljúga 15:50 en já..seinkun). En hér ætla ég að reyna að hafa svona dagbók um hvað ég og mínir roomies (Stulli bró og Kristín) erum að gera.
28. maí.
Í dag kláraði ég að pakka og svona, kvaddi hana Kolbrúnu mína :* og svo fórum við fjölskyldan út á flugvöll og þar var innritun og yfirvigt á töskum. Við kvöddumst svo :* pabbi, mamma og thelma. Bless í bili
sé ykkur síðar ![]()
Þá tók við bið á "Central Bar" með samloku og sítrónutopp (geggjað cool í leðurjakkanum) keypti mér nýja Tool diskinn og Bloodhound gang diskinn líka (Talaði við hann Kolbein í símann). Ég gekk út að Gate 29 haldandi að flugvélin væri On Time en nei.. sá svo á leiðinni að henni hafði verið seinkað um 30 mín. þá fór ég bara að finna mér sæti.. og viti menn.. fékk ég sæti við hliðina á Bigga í Maus.
Síðan flaug ég, keypti eina flösku af Brennivíni í fluginu til að gefa fólki í Bretlandinu. Lenti.
Stulli tók á móti mér og það tók okkur óra tíma að komast útaf flugvellinum.. fundum ekki bílinn.. HAHAHA og svo gleymdum við að borga parking miðann. Við töluðum við svona Parking Assistant og hann talaði svona;
"Heeó, há kn æ hep joo" mjög skondið.
Við komumst svo heim, og þar var hent borgurum á grillið og etið með mikilli list. Á meðan horfðum við á Mörgæsamyndina.. HAHAHAHA ! mjög góð mynd. Svefn.
29.maí.
"Þegar ég vaknaði um morguninn" við að fólkið á hæðinni fyrir ofan voru að færa húsgögnin hjá sér eins og að það væri að koma heimsendir ! hvernig er hægt að færa svona mikið á einum morgni ! Góðan daginn ! og svo fóru þau að rífast. :/ ég fór bara að horfa á Kill Bill 1 og spilaði á gítarinn mest allann daginn, Stulli að vinna og Kristín að vinna frá hádegi. Ég fór svo í KÖLDUSTU sturtu sem ég hef nokkurntíman farið í því að ég vissi ekki að ég átti að ýta á einhvern takka í eldhúsinu svo að heita vatnið kæmi á, en hún var þó ekki lengi sú sturta. Ég fór svo að hitta Stulla og Kristínu ásamt Tony (hugsanlegum yfirmanni mínum bráðum), Jo, Ian og Faye um klukkan 18:00 í golfklúbbahúsinu.
Komum heim og borðuðum Fahjitas og horfðum á Friends.
30.maí.
Vaknaði og horfði á smá Friends, Stulli farinn í vinnuna og Kristín sofandi og ég ákvað að búa til blogg.. haha
ég og Kristín ætlum að skella okkur í IKEA og í einhverjar skóbúðir fyrir hana og mömmu
En já, þetta voru fyrstu tveir dagarnir og þriðji morguninn og þetta er lengsta blogg sem ég hef skrifað á ævinni !
Bless í bili

Skildu eftir svar