Fréttir

Hafið þið eitthvað hugsað útí það hvað það eru alltaf slæmar fréttir í fréttum?

Hér er listi af “nýjum” erlendum fréttum af mbl.is

  • Herliði sigað á sjóræningja
  • Bretar banna klasasprengjur
  • Þráðbeini turninn í Písa?
  • Nepal orðið lýðveldi
  • Sönnunargagnið er leyniskjal
  • Al-Qaeda hvetur til notkunar gereyðingavopna
  • Tíu uppreisnarmenn felldir í átökum í Bagdad
  • Bush sætir gagnrýni frá fyrrum samstarfsmanni
  • Lífstíðarfangelsi fyrir fjöldamorð
  • Talið að móðir hafi svelt dóttur sína til bana

7 af þessum 10 eru eitthvað tengdar Morði, limlestingum eða stríðum.

Svo komum við að þeim íslensku;

  • Önnur bilun í ljósleiðara
  • Árásarmenn ekki í gæsluvarðhald
  • Utanríkismálanefnd afgreiðir ályktun gegn Guantánamo
  • Ríkið hafnaði gagntilboði hjúkrunarfræðinga
  • Njörður á hrefnuveiðar að nýju
  • Vanskil að aukast á ný
  • Háu eldsneytisverði víða mótmælt
  • Sjöfaldar ævitekjur á einu ári
  • Kópavogur sker upp herör gegn veggjakroti
  • Icelandair dregur úr ferðaframboði í vetur

8 af þessum 10 innihalda eitthvað neikvætt…

Skrýtið að fólk sé hálf þunglynt á þessu litla skeri í miðju
Atlantshafi?

Heimir Hudson kveður í bili.. . hvernig lýst ykkur á það nafn?
Hudson… hljómar eins og Björnsson ef maður segir það hratt.

There are no comments on this post

Leave a Reply