Jæja kærir áhofendur, áhangendur, endur og aðrir hálsar.
Ég skellti mér ásamt minni ástkæru systur í jólagjafa leiðangur.
“Leiðangurinn mikli” (hljómar eins og nafn á bók?) lá í ýmsar
verslanir um bæinn en nú flestar í kringlunni.
Þar var spreðað hundruðum þúsunda yena í gjafir og fleira
tilheyrandi. En þetta var nú fínasta ferð og náði maður að
versla allflesta pakka, en ég var ekki með neitt skrifað niður
um hvað ég ætlaði að kaupa.
En til gamans má geta að ég rakst á eitt stykki bók í bókabúð
sem en bókin ber nafnið “Stórar spurningar”.
Ég held að þetta sé nú eitthvað fyrir mig því að það er alltaf
verið að líkja manni við Ara sem var alltaf að spyrja spurninga
í vísunni “Þegar ari var lítill”.
Ég gluggaði eitthvað í þessa skruddu og rekst ég á spurningu
sem er um upphaf alheims.
Ég man nú ekki alveg hvernig spurningin hljómaði en því var
svarað að heimurinn varð til á 3 mínútum og 12 sekúndum.
Eða þá var kominn “grundvöllur” fyrir fyrstu atómin og stærðin
á heiminum var orðin nokkur þúsundir ljósára og hitinn búinn
að minnka úr minnir mig 15 milljónum billjóna í 30.000 billjón
gráður. Gott sólbað þar á ferð?
Nokkuð áhugavert svar við þessu
einhver lærisveinn Alberts
Einsteins sem á að vera besti efna/eðlisfræðingur í heimi kom
þessu svari frá sér. “Sprengingunni” er lýst í nokkrum þrepum
og meira að segja meðal Heimir eins og ég næ þessu nokkurveginn.
Ég er náttúrulega ekki alveg viss hvort að þetta sé rétt hjá mér
en þetta var eitthvað í áttina en þó gaman að velta þessu fyrir sér
Hérna er allskonar upplýsingar um heim og geim:
(já, ha ha ha. Heimir Geimir)
http://en.wikipedia.org/wiki/Universe
http://en.wikipedia.org/wiki/Wormhole
http://en.wikipedia.org/wiki/Black_hole
